Félag kvikmyndagerðarmanna auglýsir eftir umsóknum til úthlutunar úr höfundasjóði félagsins fyrir kvikmyndir sem frumsýndar voru í sjónvarpi eða kvikmyndahúsum, gefnar út á DVD, eða birtar með öðrum hætti fyrsta sinn annarsvegar á árunum 2013-2015 og hinsvegar 2016.
Rétt til úthlutunar skv. samþykktum FK eiga:
- Kvikmyndastjórar (ekki leiknar myndir)
- Kvikmyndatökumenn
- Klipparar
- Hljóðhöfundar
- Ljósahönnuðir
Hægt er að sækja umsóknareyðublað hér.
Umsóknir skulu berast:
- Félagi kvikmyndagerðamanna,
pósthólf 1652, 121 Reykjavík. - eða á tölvupósti til filmmakers@filmmakers.is
Umsóknarfrestur er til 21. júní 2018.
Ekki verður tekið tillit til umsókna sem berast eftir þann tíma.