Aðalfundur Félags kvikmyndagerðarmanna verður haldinn mánudaginn 30. maí kl. 17.00
Stórhöfði 29, 110 Reykjavík.
Gengið inn fyrir neðan hús, Grafarvogs megin.
Aðalfundurinn fer fram samkvæmt lögum félagsins.
- Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir reikningar félagsins
- Lagabreytingar – lög félagsins uppfærð að nýrri stöðu – stéttarfélagshluti laga felldur úr gildi, hagsmunahluti og fagfélagshluti félagsins styrktur.
- Kosning stjórnar
- Ákvörðun um fast félagsgjald næsta almanaksárs
- Kosning endurskoðanda
- Önnur mál
Léttar veitingar í boði
Vinsamlega sendið póst með framboðum á netfangið formadur@fkvik.is ef þið hafið áhuga á að taka virkan þátt í starfsemi félgasins.