Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Menningarsjóð FK. Menningarsjóður Félags kvikmyndagerðarmanna auglýsir styrki til rétthafa höfundalauna.
Styrkir eru veittir m.a. vegna:
- Þátttöku á kvikmyndahátíðum
- Endurmenntunar
- Ráðstefnukostnaðar
- Ferðakostnaðar
- Önnur sambærileg verkefni
Ekki eru veittir styrkir til handritagerðar eða framleiðslu kvikmynda sem eiga rétt á styrkjum frá KMI og bent á Kvikmyndamiðstöð hvað það varðar.
Úthlutunarnefnd höfundatekna FK metur hverja umsókn í samræmi við úthlutunarreglur Menningarsjóðs.
Hámarks úthlutun er 200.000,- kr.